Er hettumávur uppáhalds fuglinn þinn? Ert þú uppfull/ur/t af æsingi yfir því að farfuglarnir séu LOKSINS mættir til landsins? Vantar þig fleira fuglaáhugafólk í líf þitt? KOMDU Á WINGSPAN SPILAMÓT Á LOFT HOSTEL ÞANN 15.MAÍ Við ætlum að bjóða til Wingspan spilamóts þar sem spiluð verður grunnútgáfa spilsins (án expansion pakka) á nokkrum borðum í einu. STIGAHÆSTU SPILARAR KVÖLDSINS HLJÓTA VEGLEGA (fugla)VINNINGA! Dæmi um vinninga: *12.6 kg af gómsætu fuglafóðri *Fuglabarmnælur *Fóðurkúlumedalíur *Aðdáun foreldra þinna sem hafa aldrei skilið hvað þetta fugladæmi snýst eiginlega um. Allt fugla- og spilafólk er hjartanlega velkomið á kvöldið á Loft Hostel á Bankastræti 7, 101 Reykjavík. Takið með ykkur góðan spilafélaga, fáið ykkur TILBOÐSBJÓR á barnum því það er kominn tími á fugladansinn! Athugið að það þarf ekki að kunna spilin til að mæta. Spilasérfræðingar verða á svæðinu frá báðum samtökum og leiða þá sem vilja í gegnum spilin. Happy hour er frá 15:00 til 19:00 og þátttakendur fá 15% afslátt af bjór á dælu og húsvíni. Má bjóða þér að skrá þig í Landvernd og/eða Fuglavernd?
https://landvernd.is/gerast-felagi/ https://fuglavernd.is/.../um.../gerast-felagi-i-fuglavernd/