Vorsýning skólans fer að opna fimmtudaginn 8. maí kl. 15:00 í nýju húsnæði skólans að Hlemmi, Rauðarárstíg 10. Verkin á sýningunni eru eftir 108 dagskólanemendur og um 300 nemendur sem eru á vorin á barna- og unglinganámskeið og fullorðinsnámskeið. Námsleiðir dagskólans eru listnámsbraut til stúdentsprófs, eins ars fornám, og eins árs myndlist fyrir nemendur með þroskahömlun. Skólinn býður einnig upp á tveggja ára viðbótarnám við framhaldsskóla í keramiki, málaralist, teikningu og textíl. Viðb+otarnámin miðar að því að dýpka fagþekkingu og auka víðsýni nemenda og búa þau undir frekara listnám eða vinnu sem sjálfstæðir listamenn og hönnuðir. Um sýninguna: Á listnámsbraut eru nemendur að búa sig undir háskólanám í myndlist og hönnun. Nemendur á fyrra ári í námi til stúdentsprófs sýna verkefni unnin í stærðfræði áfanga en stúdentsefni brautarinnar sýna sjálfstæð lokaverkefni eftir tveggja ára nám. Nemendur sem þegar hafa lokið starfsbraut eða stúdentsprófi af annarri braut framhaldsskóla sýna sjálfstæð lokaverkefni eftir eins árs nám við skólann. Tveir útskriftarnemendur á textílbraut sýna sjálfstæð lokaverkefni en aðrir nemendur á keramikbraut, listmálarabraut, teiknibraut og textílbraut sýna verkefni unnin á fyrra námsárinu af tveimur. Á sýningunni verða verkefni eftir nemendur á námskeiðum við skólann – bæði börn, unglinga og fullorðna. Kennarar velja verk til sýningar í samráði við nemendur. Vorsýningin er tilvalið tækifæri fyrir listunnendur og þá sem hafa áhuga á að kynnast námsframboði og starfsemi skólans. Opnunartímar sýningar: • Fimmtudagur 8. maí kl. 15-18 (Opnun) • Föstudagur 9. maí kl. 13-18 • Laugardagur 10. maí kl. 13-18 • Sunnudagur 11. maí kl. 13-18 • Mánudagur 12. maí kl. 13-18 Kaffi, leit veitingar og góð stemmning. Verið hjartanlega velkomin!