Við blásum til vinnuferðar í Bása helgina 16.-18. maí. Margir telja Bása einn fallegasta stað landsins og það er gefandi vinna að gera þessa paradís enn betri. Þegar margar hendur leggjast á eitt við að bæta, byggja, snyrta og laga verður útkoman þannig að allir Útivistarfélagar fyllast stolti. Verkefnin eru mörg og…
Staðsetning
Básar Þórsmörk
Útivist
Fös 16 maí • 00:00
Vinnuferð í Bása
Básar Þórsmörk
Við blásum til vinnuferðar í Bása helgina 16.-18. maí. Margir telja Bása einn fallegasta stað landsins og það er gefandi vinna að gera þessa paradís enn betri. Þegar margar hendur leggjast á eitt við að bæta, byggja, snyrta og laga verður útkoman þannig að allir Útivistarfélagar fyllast stolti. Verkefnin eru mörg og margbreytileg og því skorum við á alla sem eiga kost á að koma í Bása þessa helgi og leggja sitt af mörkum. Á laugardagskvöldið verður svo að sjálfsögðu sönn Básagleði og ekki ólíklegt að gripið verði í gítar og söng. Farið er af stað síðdegis föstudagskvöld og til baka á sunnudag. Að venju verður matur og ferðakostnaður á reikning félagsins. Áhugasamir sendi póst sem fyrst á hordur@utivist.is Athugið að það verður einnig vinnuferð 9 - 11 maí. Þá verður farið á eigin bílum og byrjað á verkefnum. Látið vita ef þið viljið koma með í þá ferð.