Verið hjartanlega velkomin á sýninguna mína.
Það er eitthvað við víðáttuna.
Línurnar í fjöllunum. Litirnir. Kyrrðin.
Í gegnum árin hef ég sótt innblástur í íslenska náttúru, á fjöllum, heiðum og á hálendinu. Úr þeirri upplifun verða til myndir sem sækja í stóran skala landsins, víðernin, birtuna og kraftinn sem einkennir íslenska náttúru.
Hlakka til að taka á móti ykkur, spjalla og sýna ykkur verkin mín.
Sýningaropnun 14. nóvember 2026 (15:00-18:00)
Hvar: Beitunni á Breið, Akranesi. (Rétt hjá Akranesvita).