Um viðburðinn
Við fögnum útgáfu bókarinnar Út með færið! eftir Gylfa Pálsson. Allir eru velkomnir í Pennann Smáralind til að fagna með okkur og fjölskyldu Gylfa. Bókin verður á sérstöku tilboði og lesið verður úr bókinni. Kaffi, bubblur og sætmeti. Sem sagt, andleg og líkamleg næring! Og takið endilega veiðifélagann með :)