Leggstu í mjúkt silkið, láttu það halda utan um þig og leyfðu tónum og snertingu að leiða þig inn í djúpa hvíld.
Í 75 mínútur fyllir tónheilun rýmið. Á meðan ganga Sara María, Tinna María og Íris Ann á milli og veita hverjum og einum höfuðbeina- og spjaldhryggjarmeðferð (Cranio Sacral Therapy) í silkinu. Hljóðbylgjurnar og mild, nærandi snertingin vinna saman. Þær róa taugakerfið, losa um spennu sem líkaminn hefur geymt og gefa rými til að endurnýjast.
Margir tengja 11.11. við nýtt upphaf og opnun. Það er fallegur dagur til að staldra við, sleppa takinu og hlusta inn á við.
Kvöldið hentar öllum sem þrá djúpa slökun og hvíld. Engin fyrri reynsla er nauðsynleg.
Gott að vita
Gott er að mæta tímanlega.
Lengd: 75 mínútur.
Komdu í þægilegum fötum.
Hlökkum til að taka vel á móti þér <3
https://www.edenyoga.is/booking-calendar/tónheilun-cranio-sacral-í-silkinu?referral=service_list_widget
Sara, Íris Ann & Tinna María