Á þessari tveggja daga ráðstefnu verður gestum boðið að kynna sér önnur sjónarmið en þau sem hafa verið ríkjandi í geðheilbrigðismálum. Fyrirlesarar eru aðilar sem hafa beitt sér á alþjóðavettvangi fyrir breyttri nálgun í geðheilbrigðismálum. Auk þeirra mun fólk með reynslu af tilfinningalegri vanlíðan og/eða fíkn leiða vinnustofur. Við vonumst til þess að fólk, sem lætur sig geðheilbrigðismál varða, mæti og deili hugmyndum og taki þátt í nýsköpun og framþróun í málaflokknum. Við bjóðum leikmenn jafnt sem fagfólk velkomið. Upplýsingar um viðburð: Fimmtudagur 15. maí: Vinnustofur frá 9:00 til 16:00 Föstudagur 16. maí: Ráðstefna frá 9:00 til 16:00 Gestafyrirlesarar: Will Hall, Caroline Mazel-Calton, Trevor Eyles, Fritzi Hortsman og Elisabet Lahti Verð í forsölu sem gildir til 10. janúar: Verð fyrir báða daga: 23.900 kr. – 6.000 kr. fyrir námsmenn og öryrkja Verð fyrir föstudag: 12.900 kr. – 4.000 kr. fyrir námsmenn og öryrkja Miðasala fer fram á tix.is:
https://tix.is/event/18750/social-change