Skráning:
https://www.islandsbanki.is/is/vidburdur/taeknikaffi-nov-26
Tækninni fleygir fram og við viljum verða að liði 🤝
Okkur langar því að bjóða í Tæknikaffi 12. nóvember í höfuðstöðvum Íslandsbanka í Kópavogi, þar sem við förum yfir notkun Íslandsbankaappsins og netbankans. Við kynnum meðal annars nýja möguleika í appinu og netbankanum, svörum öllum þeim spurningum sem kunna að brenna á þér og kynnum leiðir til að nýta stafræna þjónustu bankans sem best.
Við ætlum að hittast í Dalnum á 3. hæð í Norðurturni Smáralindar en lyfturnar eru staðsettar vinstra megin við útibú Íslandsbanka. Á boðstólnum verður kaffi, vöfflur og gott spjall. Gott er að taka með sér tölvu, spjaldtölvu eða snjallsíma til að fá meira út úr spjallinu.