Írska söngsveitin SYSTIR er hluti af hinu heimsþekkta ANÚNA Collective og er ein af eftirsóttustu söngveitum Írlands. Systir kemur sérstaklega til Íslands til að halda tónleika í Hannesarholti. Með lagavali sínu leitast SYSTIR við að draga fram hina fjölbreyttu liti og blæbrigði kvenmannsraddarinnar. Tónlistarflutningurinn er blanda af nútíma söng- og hljóðfæratækni og fornri írskri tónlistarhefð. SYSTIR sækir innblástur í hinar gleymdu sönghefðir Evrópu, einkum sean-nós, sem mætti kalla „írskan rímnasöng.“ Þau eru óhrædd í verkefnavali sínu og flytja á sömu tónleikum miðalda söngperlur og popplög, til að mynda lög eftir Janelle Monáe og Cranberries, í sínum eigin útfærslum. Á síðasta ári voru þau í tónleikaferðalagi um Kína og Japan. SYSTIR hafa nýverið lokið upptöku á plötu sem kemur út á vormisserum 2025. Listrænn stjórnandi er Michael McGlynn, tónskáld Meðlimir eru: Ash McGlynn, Caitríona Sherlock, Judith Lyons, Lauren McGlynn, Lorna Breen, Sara Weeda, Sara Di Bella, Sorcha Fenlon, Sigrid Algesten, Cian O’Donnell, Andrew Boushell