Sunnudaginn 15.nóvember kemur Ólafur Andri Guðmundsson og verður með sýnikennslu í reiðhöll Harðar í mosó.
Óli útskrifaðist sem reiðkennari frá Hólum árið 2009 og hefur starfað við þjálfun og tamningar á Feti síðan 2011. Hann hefur fagnað góðu gengi bæði á kynbótabrautinni sem og keppnisvellinum og hefur verið virku í kennslu síðast liðin ár og kennt þar á meðal Reiðmanninn á vegum LBHÍ.
Þemað er þjálfun og uppbygging keppnishestsins en sýnikennslan höfðar að sjálfsögðu til allra sem hafa áhuga á þjálfun hesta hvort sem hún snýr að keppni eða til almennra útreiða.
Sýnikennslan hefst klukkan 12:00 og stendur í um 2 klukkutíma með hléi.
Verð er 1500kr, frítt fyrir 18 ára og yngri
Hvetjum sem flesta til að mæta, að sjálfsögðu eru allir velkomnir! Frekari upplýsingar þegar nær dregur!