Fersk og frískandi sýning að voriSund er bráðskemmtilegt nýtt íslenskt verk sem fjallar um sundmenningu okkar Íslendinga með fyndnum og frumlegum hætti. Á sviðinu er sundlaug og leikarar bregða sér í hlutverk sundgesta sem hlera samtöl annarra í pottinum, sóla sig, sprikla í kvöldsundi, skella sér í gufuna og kalda pottinn. Sundlaugar eru musteri okkar Íslendinga og nú fær laugin sjálf að bregða sér á fjalir leikhússins!Leikhópurinn Blautir búkar frumsýndi Sund í Tjarnarbíói við frábærar undirtektir á síðasta leikári. Sýning hlaut tvær tilnefningar til Grímuverðlauna, fyrir hljóðmynd og dans- og sviðshreyfingar ársins. Nú verður sýningin unnin áfram og endurfrumsýnd í Þjóðleikhúsinu, og leikari úr Þjóðleikhúsinu, Örn Árnason, bætist í hópinn!Sundeftir Birni Jón Sigurðsson og leikhópinnLeikstjórn: Birnir Jón SigurðssonTónskáld: Friðrik Margrétar-GuðmundssonSviðshreyfingar: Andrean Sigurgeirsson í samstarfi við leikhópinnLeikmynd og búningar: Kristinn Arnar SigurðssonLýsing: Fjölnir GíslasonFramleiðandi: Kara Hergils, MurMur ProductionsFlytjendur: Andrean Sigurgeirsson, Erna Guðrún Fritzdóttir, Eygló Hilmarsdóttir, Friðrik Margrétar-Guðmundsson, Kjartan Darri Kristjánsson, Þórey Birgisdóttir, Örn Árnason.Blautir búkar í samstarfi við Þjóðleikhúsið. Verkefnið er styrkt af Sviðslistasjóði.