Aðstandendur eru fjölbreyttur hópur með ólíkar þarfir en á það sameiginlegt að eiga ástvin á hjúkrunarheimili. Hóparnir byggjast á hugmyndafræði jafningjastuðnings og er markmiðið með samverunni að hittast, spjalla og deila reynslunni. Stuðningur annarra í svipuðum aðstæðum getur bætt líðan og dregið úr streitu. Öll velkomin og skráning óþörf. Stuðningshópurinn er í umsjón Katrínar Mjallar Halldórsdóttur. Katrín Mjöll er með meistaragráðu í klínískri sálfræði frá Háskólanum í Reykjavík. Þá er hún ein af þáttastjórnendum hlaðvarpsins Kvíðakastið og kemur einnig að kennslu í grunn- og meistaranámi við ýmsa háskóla, ásamt því að leiðbeina í BSc lokaverkefnum.