Stórtónleikar blásarasveitar MÍT í hátíðarsal MH
Blásarasveit MÍT er nýr og spennandi vettvangur fyrir ungt tónlistarfólk sem lærir á blásturshljóðfæri og slagverk. Sveitin er skipuð nemendum MÍT og tónlistarnemum sem hafa tekið þátt í starfi skólahljómsveitanna á höfuðborgarsvæðinu eða stundað nám í öðrum tónlistarskólum.
Markmið blásarasveitar MÍT er að skapa hvetjandi umhverfi þar sem ungmenni geta haldið áfram að spila saman og tengjast vinaböndum, þróast sem hljóðfæraleikarar og upplifa kraftinn og gleðina í samvinnunni. Blásarasveitin byggir á því frábæra starfi sem unnið er í skólahljómsveitum – þar sem samvinna, hlustun, færni og gleði eru í forgrunni.
Í blásarasveit MÍT koma saman um 50 ungmenni sem leggja allt sitt í tónlistina og mynda stórkostlega heild undir stjórn Inga Garðars Erlendssonar
Á þessari önn fæst sveitin við spennandi og krefjandi kvikmyndatónlist úr ýmsum áttum. Ekki missa af skemmtilegum og glæsilegum tónleikum!