✨ Öll velkomin á opinn kynningarfund á Teams um framhaldsnám í stjórnun! Viðskiptadeild býður áhugasömum á rafrænan kynningarfund á Teams um framhaldsnám í stjórnun. Umsóknarfrestur er til 5. júní 📍 Fundurinn fer fram á Teams, hlekkur er hér:
https://www.unak.is/is/samfelagid/vidburdir/stjornun-kynningarfundur Fyrirkomulag fundarins: 🔹 Sigurður Ragnarsson, deildarforseti Viðskiptadeildar, og Hjördís Sigursteinsdóttir, brautarstjóri meistaranámsins og varadeildarforseti Viðskiptadeildar, kynna námið 🔹 Spurt & svarað ✨ Mörg spennandi og gagnleg námskeið eins og: Gervigreind og forysta, Verkefnastjórnun, Sjálfbær nýsköpun og frumkvöðlaforysta, Stjórnendur og starfsumhverfi, Breytinga- og krísustjórnun, Mannauðsstefna, mælikvarðar og áhrif á viðskipti og Árangursrík forysta. 🎓 Framhaldsnám í stjórnun er 100% fjarnám og getur þú valið á milli þess að stefna að MM gráðu eða MS gráðu. Nánari upplýsingar um námið og fundinn eru hér:
https://www.unak.is/is/samfelagid/vidburdir/stjornun-kynningarfundur ❤ Við hlökkum til að sjá þig!