ATH. Ný staðsetning! „Sterkari saman – líkamsrækt fyrir trans fólk“ er vikulegur viðburður í Afrek. Viðburðurinn er í raun hóptími í líkamsrækt fyrir trans, kynsegin og gender questioning fólk. Hóptíminn er á mánudögum kl. 19:10–20:15. Við förum saman í gegnum allan tímann, alveg frá upphitun og niður í teygjur eða…
Staðsetning
Afrek
Heilsa & vellíðan
Mán 12 maí • 19:10
Sterkari saman / Stronger together
Afrek
ATH. Ný staðsetning! „Sterkari saman – líkamsrækt fyrir trans fólk“ er vikulegur viðburður í Afrek. Viðburðurinn er í raun hóptími í líkamsrækt fyrir trans, kynsegin og gender questioning fólk. Hóptíminn er á mánudögum kl. 19:10–20:15. Við förum saman í gegnum allan tímann, alveg frá upphitun og niður í teygjur eða „cool down“. Það er alltaf í boði að sitja hjá og/eða taka sér pásur. Allar æfingarnar eru aðgengilegar jafnt byrjendum sem lengra komnum. Hóptíminn er skipulagður af hópi trans fólks í samstarfi við Trans Ísland. Tilgangurinn með hóptímunum er fyrst og fremst að búa til öruggara rými fyrir trans fólk til að hreyfa sig og styrkja sig líkamlega. Um leið er vonin að lagður verði grunnur að samfélagi trans fólks sem hefur áhuga á að iðka líkamsrækt. Í kjölfarið getum við svo stutt og leiðbeint hvort öðru varðandi hinar ýmsu hindranir sem trans fólk mætir þegar kemur að íþróttaiðkun. Aðstaða og aðgengi: Þátttaka er ókeypis. Fólk undir 18 ára aldri þarf sérstakt leyfi frá foreldrum eða forráðafólki. Karlaklefi og kvenaklefi eru á staðnum og svo kynlaus klefi sem rúmar eina manneskju í senn.