Á samsýningunni Staldraðu við eru sýnd verk eftir átta listamenn frá Englandi og Íslandi, þar sem sjónum er beint að list sem ferli og getu hennar til að tengjast áhorfandanum og umhverfi sínu. Að staldra við er þegar við höfum tilhneigingu til að dvelja lengur vegna tregðu til að fara. Sú tregða er oft knúin áfram af angurværri löngun, þótt við vitum ekki endilega hvers vegna og hvað það er sem við þráum. Það sem við vitum er aðeins að við verðum að staldra við. Sýningin kallar fram spurningar um hvað gerist þegar við stöndum frammi fyrir verkum sem krefjast þess að við tökum þátt og verðum fyrir áhrifum af þeim. Verkum sem í sakleysi sínu og nánum aðstæðum eru áhættusækin. Þá nota listamennirnir mismunandi aðferðir og tækni til að nálgast þessar spurningar. Listamennirnir sem taka þátt í sýningunni eru Anna Hrund Másdóttir, Birgir Snæbjörn Birgisson, Danny Rolph, Ingibjörg Sigurjónsdóttir, Joel Tomlin, Kristinn Már Pálmason, Peter Lamb og Vanessa Jackson. Sýningarstjórar eru Birgir Snæbjörn Birgisson og Mika Hannula.