Finnski metsöluhöfundurinn Sofi Oksanen verður til viðtals á sviði í Bókabúð Forlagsins föstudaginn 13. nóvember næstkomandi kl. 17:00.
Sofi er einn fremsti rithöfundur Norðurlanda. Hún sló í gegn með skáldsögunni Hreinsun, sem hlaut Bókmenntaverðlaun Norðurlandaráðs árið 2010 og hefur verið þýdd á tugi tungumála. Í bókum sínum hefur hún beint sjónum að sögu Eistlands og skugga Sovétríkjanna, og fáir höfundar tala af jafnmiklum krafti um samtímann.
Silja Bára Ómarsdóttir, rektor Háskóla Íslands, ræðir við Sofi, en í forgrunni verður bókin Í sama strauminn: Stríð Pútíns gegn konum.
Aðgangur er ókeypis og allir eru velkomnir!