Gönguhópur Sorgarmiðstöðvar SKREF fyrir SKREF býður upp á skipulagðar göngur einu sinni í mánuði. Þetta eru alltaf léttar göngur í nálægð við höfuðborgarsvæðið. Þriðjudaginn 13. maí verður farið í gönguferð í kringum Vífilsstaðavatn. Hist á bílaplani. Mæting er kl. 17:15. Lagt verður af stað stundvíslega kl. 17:30. Það er nauðsynlegt að skrá sig og er lágmarksþátttaka nauðsynleg. Skráning fer fram hér:
https://docs.google.com/.../1FAIpQLSc78IsZXOc9Uf.../viewform Ef þið hafið einhverjar fyrispurnir eða þurfið að tilkynna forföll má hafa samband á skref@sorgarmidstod.is Að nýta náttúruna og útiveru gefur okkur orku og losar um spennu.