Unnur leikur, syngur og dansar sig í gegnum hræðsluna og nýtir tónlist til að klífa skelfilegustu fjöllin.Unnur Elísabet hefur verið skíthrædd í 40 ár! Hrædd við myrkrið, fífla, vindkviður og stundum eplabita. En nú er komið gott. Í þessari stórskemmtilegu sýningu fer hún yfir það sem hefur hamlað henni í lífinu hingað til – í leik, dansi og söng. Með henni á sviðinu er Stórsveit eða tveggja manna band, þetta er lítið svið. Unnur sýnir að ef það er hægt að breyta hræðslu í létt Broadway-númer þá er allt mögulegt. Með henni á sviðinu til halds og trausts eru Annalísa Hermannsdóttir og Einar Lövdahl Gunnlaugsson.Tónlistastjóri er Halldór Eldjárn.Sýningin er í leikstjórn Katrínar Halldóru Sigurðardóttur.Sýningastjóri og ljósahönnuður er Sigurður Starr Guðjónsson.Búningahönnuður: Sigrún Jörgensen.Markaðstjóri Mikael Emil Kaaber.