Laugardaginn 14. nóvember bjóðum við upp á kynningu á skíðaskotfimi og skemmtimót fyrir alla aldurshópa. Hægt verður að hlaupa eða mæta á hjólaskíðum. Frjálst val
Engin þörf á skráningu. Þú mætir bara á staðinn
📍 Fossvogur, við tennisvelli Víkings (nær Fossvogsskóla) nákvæmari staðsetning verður auglýst síðar
🕙 Kl. 10–14
Dagskrá:
10:00 - 12:00 - Kynning á skíðaskotfimi. Við verum á svæðinu til að leiðbeina. Hægt verður að taka æfingahringi og skjóta af laserrifflum. Hentar öllum frá 6 ára aldri.
12:00 - 13:00 - Skemmtiskokk og mót fyrir alla aldursflokka
12 ára og yngri: 1,5 km – skotið tvisvar (500 m hringir)
12–15 ára: 3 km – skotið tvisvar (1 km hringir)
16 ára og eldri: 4 km – skotið þrisvar liggjandi (1 km hringir)
Hringir verða auglýstir síðar í vikunni.
Komdu og prófaðu eitthvað nýtt – við lofum góðri stemningu sama hvernig viðrar!
Hlökkum til að sjá þig!
#skíðaskotfimi #Ullur #Fossvogur