Nú er komið að hinu geisivinsæla rithöfundakvöldi Menningarmiðstöðvar Hornafjarðar en viðburðurinn fer fram sunnudaginn 15.nóvember kl.20 í Nýheimum.
Í ár tökum við á móti 5 rithöfundum sem allir gefa út nýja bók um þessi jól. Bækurnar eru jafn ólíkar og þær eru margar og því ættu öll að geta fundið eitthvað við sitt…
Nú er komið að hinu geisivinsæla rithöfundakvöldi Menningarmiðstöðvar Hornafjarðar en viðburðurinn fer fram sunnudaginn 15.nóvember kl.20 í Nýheimum.
Í ár tökum við á móti 5 rithöfundum sem allir gefa út nýja bók um þessi jól. Bækurnar eru jafn ólíkar og þær eru margar og því ættu öll að geta fundið eitthvað við sitt hæfi.
Aðgangur er að sjálfsögðu ókeypis eins og ávallt og mun Menningarmiðstöðin bjóða upp á kaffi og konfekt á meðan á viðburðinum stendur.
Rithöfundarnir sem sem heimsækja okkur í ár eru eftirfarandi:
- Felix Bergsson með bókina Ævintýri Frikka og Freyju – Leynifélag í lífsháska
- Arnþór Gunnarsson með bókina Hringvegurinn
- Anna Jóhannsdóttir með bókina Svavar Guðnason: Litróf birtunnar – um list brautryðjanda
- Gerður Kristný með bókina Míkadó
- Margrét Höskuldsdóttir með bókina Eldur í öskunni leynist
Það þarf vart að taka fram að allar bækurnar verða fáanlegar til útláns á Bókasafni Hornafjarðar um leið og við fáum þær í hendur.
Við hlökkum til að eiga góða kvöldstund með ykkur í Nýheimum sunnudaginn 15. nóvember n.k.