Í vetur ætlum við að hafa opna fundi fyrir þá sem hafa áhuga á skapandi skrifum annan hvern miðvikudag frá kl. 17-18:30 Þá verða fundir nýttir í að gera margs konar ritæfingar og ræða ólíkar nálganir á skrif, en einnig fara í stutta upphitun og svo þögla skrifsetu, eða svokallaðar Ritfangabúðir, þar sem hver vinnur í…
Staðsetning
Amtsbókasafnið á Akureyri
Menntun
Mið 14 maí • 17:00
Ritfangar - skapandi skrif
Amtsbókasafnið á Akureyri
Í vetur ætlum við að hafa opna fundi fyrir þá sem hafa áhuga á skapandi skrifum annan hvern miðvikudag frá kl. 17-18:30 Þá verða fundir nýttir í að gera margs konar ritæfingar og ræða ólíkar nálganir á skrif, en einnig fara í stutta upphitun og svo þögla skrifsetu, eða svokallaðar Ritfangabúðir, þar sem hver vinnur í sínum eigin skrifum. Fólk á öllum aldri hjartanlega velkomið þegar það kemst og skráning er óþörf! Sesselía Ólafsdóttir heldur utan um hópinn og hún getur veitt nánari upplýsingar á netfanginu sesseliao@gmail.com Ritfangar eru styrktir af Menningarsjóði Akureyrarbæjar. Við hvetjum ykkur til að mæta með umhverfisvænum hætti á viðburðinn. Frítt er í strætó og allir strætisvagnar stoppa í miðbænum í 300 metra fjarlægð frá safninu