Rifjum upp! Málfræði vinnustofur
Nemendur í íslensku sem öðru máli hittast vikulega til að rifja upp hugtök málfræðinnar saman.
Við hittumst á föstudögum klukkan 13:00-15:00 í Eddu, stofu 204. Við deilum glósunum okkar, hjálpumst að, spyrjum spurninga og finnum lausnir saman.
Þessir viðburðir eru haldnir af Huldumáli, félagi stúdenta í íslensku sem öðru máli við Háskóla Íslands.
Við hlökkum til að sjá ykkur!