Repertoire námskeið 16. - 18. nóvember 2026, kl 10:30 - 14:00
Bryndís Ragna Brynjólfsdóttir
SKRÁNING:
Bryndís Ragna Brynjólfsdóttir er dansari, danshöfundur, ljósmyndari og þverfaglegur listamaður sem vinnur á mótum dans, myndlistar og samfélagslegrar þátttöku.
Hún starfaði sem atvinnudansari í 23 ár, þar af 18 ár hjá Scapino Ballet Rotterdam í Hollandi, og hefur unnið með fjölmörgum þekktum dansflokkum og danshöfundum á alþjóðavettvangi. Á dansárinu 2011–2012 var Bryndís valin á lista tímaritsins Dance Europe yfir 100 framúrskarandi dansara heims. Í dag einkennist starf hennar af listrænni forvitni, þverfaglegu samstarfi og trú á mátt listarinnar til að skapa tengsl og ný sjónarhorn.
Bryndís stundaði dansnám við ArtEZ í Hollandi á árunum 1994–1997 og nam síðar ljósmyndun við Konunglega listaháskólann í Haag á árunum 2018–2022. Í listsköpun sinni sameinar hún reynslu sína af hreyfingu og sviðslistum við sjónræna frásögn, tilraunakennda nálgun og áhuga á mannlegri reynslu.
Um námskeiðið:
„Á námskeiðinu mun ég vinna með blöndu af efniviði og dansorðaforða úr þeim verkum sem ég hef kynnst á mínum 18 árum sem dansari hjá Scapino Ballet.
Ég mun meðal annars sækja innblástur í verk eftir Felix Landerer, Marcos Morau og Ed Wubbe og flétta saman ólíkar nálganir þeirra að hreyfingu, tónlist, rými og frásögn.
Markmiðið er að skapa lifandi og fjölbreytt námskeið þar sem þátttakendur fá tækifæri til að kynnast mismunandi stílum og nálgunum, en jafnframt vinna með eigin líkama og túlkun.“
Verð: 19.000- kr. / 15.000- kr. fyrir félagsmenn Dansverkstæðisins