Litla gula peysan - Prjónakaffi til styrktar sjálfsvígsforvörnum 💛 Mánudagskvöldið 12. maí verður notaleg stund með prjónakaffi í Brasserie Kársnesi, þar sem Litla gula peysan verður prjónuð, til styrktar Gulum september og sjálfsvígsforvörnum 🎗️ Peysan skartar kennimerki Lífsbrúar - miðstöðvar sjálfsvígsforvarna og uppskriftin af henni er aðgengileg hér. Hægt er að nota peysuna, t.d. á lyklakippu eða sem hálsmen eða töskuskraut. Edda Lilja Guðmundsdóttir hannaði peysuna og gaf Lífsbrú uppskriftina. Edda Lilja verður á staðnum ⭐️ og nóg af gulu og bláu garni. Prjónar sem mælt er með að mæta með eru í stærðinni 3 mm. Eftir samveru kvöldsins verða Litlu gulu peysurnar, færðar Lífsbrú sem mun selja þær til styrktar sjálfsvígsforvörnum í Gulum september. Í kennimerki Lífsbrúar er notað tímalaust myndmál. Semikomman stendur fyrir það að saga einstaklings er ekki lokið, það er alltaf framhald á eftir semikommu. Brúin er tákn fyrir leið yfir erfiðleika. Guli liturinn táknar ljós og von, auk þess sem hann er á heimsvísu tengdur sjálfsvígsforvörnum. Blái liturinn stendur fyrir traust og stöðugleika. Hugmyndin er að merkið vísi í ljós í myrkri, bjóði upp á stuðning og sýni að við erum öll saman í þessu, aldrei ein. Samfélag prjónafólks á Íslandi er stórt og löng hefð fyrir prjónaskap. Í prjónaskap felst núvitund sem getur verið hjálpleg fyrir geðheilsu. Það er von þeirra sem standa að Litlu gulu peysunni að það verði til hópur fólks sem prjónar eftir uppskrift Eddu Lilju, ýmist einir eða með öðrum. Á þennan hátt nýtist styrkur og samvinna prjónafólks málaflokknum. Reglulega hafa verið haldnir prjónahittingar þar sem fólk hefur hist og skapast hafa góðar prjónasamverustundir. Hægt er að skila inn prjónuðum peysum á prjónakaffihittingum eða í prjónabúðina Maró, Hlíðarfót 11, 102 Reykjavík, hvenær sem er á opnunartíma verslunarinnar. Kærar þakkir fyrir stuðninginn! ☀️ Nánar um Gulan september: Gulur september er samvinnuverkefni stofnana og félagasamtaka sem vinna saman að geðrækt og sjálfsvígsforvörnum. Það er von undirbúningshópsins að Gulur september, auki meðvitund fólks um mikilvægi geðræktar og sjálfsvígsforvarna, sé til merkis um kærleika, aðgát og umhyggju. Að Gulum september standa fulltrúar frá: Embætti landlæknis, Geðhjálp, Heilsugæslu höfuðborgarsvæðisins, Landspítala, Lífsbrú Miðstöð sjálfsvígsforvarna, Minningarsjóði Orra Ómarssonar, Píeta samtökunum, Rauða krossinum, SÁÁ, Sorgarmiðstöð, Þjóðkirkjunni og Þróunarmiðstöð íslenskrar heilsugæslu.