Orð og sögur er samstarfsverkefni Bókasafns Garðabæjar, fræðslu- og frístundasviðs, skólabókasafna, grunnskóla og leikskóla bæjarins.
Verkefninu verður ýtt formlega úr vör á degi íslenskrar tungu, 16. nóvember, í kjölfar skemmtilegrar undirbúningsvinnu í leik- og grunnskólum bæjarins. Nánar hérna:
https://www.gardabaer.is/frettir/ord-og-sogur
Markmið verkefnisins er m.a. að:
👉Efla orðaforða
👉Auka lestrargleði
👉Styrkja frásagnarhæfni og sköpun
👉Varðveita tungumálið okkar
👉Kynna bókasafnið sem lifandi samfélag og sameign íbúa.
Verkefnið verður í hámarki dagana 16. - 20. nóvember og það verður nóg um að vera á bókasafni Garðabæjar á meðan á því stendur. Við hvetjum ykkur til að kíkja í heimsókn á bókasafnið og fylgjast með á samfélagsmiðlum Garðabæjar og bókasafnsins.