Velkomin á opnun á sýningu á verkum Jes Einars Þorsteinssonar arkitekts (1934-1924).
Jes Einar hannaði fjölda bygginga, flestar á sviði íþrótta og heilsugæslu. Meðal þekktari verka hans eru Skeiðalaug í Brautarholti og heilsugæslan og tónlistarskólinn á Seltjarnarnesi.
Sérstaða Jes Einars birtist meðal annars í nálgun hans á mótun rýmis. Ólíkt mörgum samtíma arkitektum sem unnu í anda módernismans þar sem hið frjálsa plan með sýnilegu burðarvirki var algengt, hafði Jes Einar frekar sjálfa rýmismótunina að leiðarljósi. Burðarvirkið fylgdi á eftir. Með slíkri nálgun brotnar útlit húsanna upp og opnanir myndast á óvæntum stöðum.
Í verkunum eru greinileg brútalísk áhrif. Notkun Jes Einars á hrárri steypu má rekja til námsáranna í Frakklandi og áhuga hans á Le Corbusier, sem hann nefndi meðal sinna eftirlætisarkitekta, ásamt Tadao Ando og Steven Holl.
Á sýningunni eru tekin fyrir sjö ólík verkefni sem endurspegla helstu höfundareinkenni arkitektsins.
Sýningarstjórn: Haukur Hafliði Nínuson og Katrín Heiðar
Ljósmyndun: Marinó Thorlacius
Sýningin hlaut styrk úr Safnasjóði
Skráning á verkum Jes Einars hlaut styrk úr Nýsköpunarsjóði námsmanna