Píeta samtökin bjóða upp á stuðningshópa fyrir aðstandendur sem misst hafa í sjálfsvígi. Hópurinn hittist í Kiwanis salnum á Akureyri, Óseyri 6a kl: 17:00. Stuðningshópurinn er góður vettvangur fyrir aðstandendur til að hittast og geta bæði veitt öðrum stuðning og sótt fyrir sig sjálfan. Sigríður Valdimarsdóttir félagsráðgjafi leiðir hópinn og til aðstoðar er Tinna Stefánsdóttir. Hér eru dagsetningar á fundum vorannar, 2025: 20. janúar (mánudagur) kl: 17:00 17. febrúar kl. 17:00 (mánudagur) 19. mars kl. 17:00 (miðvikudagur) 16. apríl kl. 17:00 (miðvikudagur) 12. maí (mánudagur) kl: 17:00 9. júní (mánudagur) kl: 17:00