Hljómsveitin Nýdönsk heldur sína árlegu tónleika í Bæjarbíói
en hljómsveitin hefur ekki setið auðum höndum síðustu mánuði. Í sumar hljóðrituðu piltarnir nýja breiðskífu á Suður
Englandi sem heitir Í raunheimum og hefur farið ansi vel í landann. Á plötunni er meðal annars að finna lag ársins 2024 á Rás 2
og Bylgjunni; Fullkomið farartæki.
Tónleikarnir í Bæjarbíói munu innibera vinsælustu lög
sveitarinnar auk þess sem ekki er ólíklegt að nýmetið slæðist með og jafnvel sitthvað fleira. Hljómsveitina skipa þeir
Björn Jörundur Friðbjörnsson, Daníel Ágúst Haraldsson, Jón Ólafsson, Stefán
Hjörleifsson og Ólafur Hólm. Þeim til aðstoðar verða þeir Guðmundur
Pétursson, gítarleikari og Ingi Björn Ingason, bassaleikari.