Norðlenskt, nýtt og svolítið blótað 💬
Hvað eiga norðlenskur framburður, mannanöfn og blótsyrði sameiginlegt? Allt þetta og fleira kemur við sögu þegar við fögnum degi íslenskrar tungu með opinni málstofu í Háskólanum á Akureyri!
📅 16. nóvember kl. 12:00–13:00
📍 Stofa M102 í HA
Við ræðum íslenskuna frá ýmsum hliðum — frá stolti Norðlendinga af eigin framburði til þess hvernig húmor og blótsyrði geta nýst í íslenskukennslu.
Á dagskrá:
💬 „Maður er náttúrulega svo stoltur af því að vera Norðlendingur“: Viðhorf Norðlendinga til eigin framburðar
Kristín Margrét Jóhannsdóttir og Finnur Friðriksson
💬 TALÍS — kynning á verkefni um nám og kennslu íslensku sem annars tungumáls
Hermína Gunnþórsdóttir, Kristín Margrét Jóhannsdóttir og Finnur Friðriksson
💬 Jónas Rannveigarson eða Hallgrímsson? Deilur um nöfn á Íslandi á 19. og 20. öld
Páll Björnsson
💬 Helvítis fokking fokk: Húmor og blótsyrði í kennslu íslensku sem annars máls
Ingibjörg Sigurðardóttir
Öll eru hjartanlega velkomin! Komdu og hlustaðu, spjallaðu og fagnaðu íslenskunni með okkur.