Kristín R. Vilhjálmsdóttir kynnir skapandi leiðir til að virkja fjölbreytta menningu, tungumál og samskipti nemenda á íslensku um það sem skiptir máli í lífi þeirra. Áhersla er lögð á það sem sameinar okkur samhliða því að viðurkenna fjölbreytileikann og fjöltyngi sem auðlind í samfélaginu.
Vinnusmiðjan er haldin í tengslum við MEMM-verkefnið og í samstarfi við Miðstöð menntunar og skólaþjónustu og skóla- og frístundasvið Reykjavíkurborgar.
Skráning: kristinvil@gmail.com
Viðfangsefni sem komið verður inn á:
-------------------------------------
-Menningarhugtakið og það að stuðla að menningarnæmi og menningarfærni meðal barna og ungmenna
-Tungumálavitund allra nemenda (það einstaka við tungumál og það sem er sameiginlegt, tungumál sem auðlind).
Hagnýtar leiðir sem verða kynntar:
-----------------------------------
-Menningarmót - kennsluferli til að virkja reynsluheima nemenda, stuðla að gagnvirkum skilningi og samkennd.
-Töfrakista tungumálanna - nýtt námsefni frá Miðstöð menntunar og skólaþjónustu. Markmið þess er að vekja forvitni og áhuga nemenda á tungumálum og efla tungumálavitund þeirra.
-Vinna með skapandi sjálfsmyndir
Umsjón: Kristín R. Vilhjálmsdóttir, höfundur verkefnisins Menningarmót, ráðgjafi og menningarmiðlari