Skema mætir með sína stórskemmtilegu Minecraft smiðju á bókasafnið. Í smiðjunni fá þátttakendur tækifæri til þess að byggja á sérhönnuðum netþjóni Skema sem er nákvæm eftirlíking af Íslandi. Þátttakendur vinna saman í hópum og koma sér saman um byggingu og staðsetningu hennar á Íslandi. Markmið smiðjunnar eru að þjálfa teymisvinnu, skipulagningu verkefna, sköpunargáfuna og að auka áhuga á landafræði Íslands. Smiðjan hentar fyrir börn á aldrinum 7-10 ára og endilega að muna eftir nestinu. Fullt er á námskeiðið en hægt er að skrá barn á biðlista með því að senda tölvupóst á asbjorgbj@gardabaer.is