Rannsóknasetur skapandi greina (RSG) stendur að ráðstefnunni Menningarauðlind ferðaþjónustunnar, ráðstefnu um menningarferðaþjónustu og nýja ferðamálastefnu til 2030 þann 14. maí í Hofi, Akureyri. Ráðstefnan er haldin í samstarfi við Rannsóknamiðstöð ferðamála (RMF) og hlaut verkefnið styrk úr Hvata, sjóði menningar- og viðskiptaráðuneytisins. Einnig koma að ráðstefnunni fjöldi aðila úr menningargeiranum og ferðaþjónustunni. Markmiðið með ráðstefnunni er að skoða samspil og hlutverk menningar í ferðaþjónustu. Ennfremur er ráðstefnunni ætlað að skoða hvernig efla má gagnasöfn og rannsóknavirkni sem stuðlað getur að þróun og framförum á sviði menningarferðaþjónustu. Á ráðstefnunni gefst gestum kostur á að heyra margvíslegar dæmisögur um vel heppnaða menningarferðaþjónustu og fræðileg erindi um rannsóknir á þessu sviði. Allir þátttakendur geta tekið þátt í hópavinnu um fjögur þemu sem verður nýtt í að þróa rannsóknastefnu RSG á sviði menningarferðaþjónustu. Þemun eru: Samstarf og klasahugsun, Markaðs- og kynningarmál, Vöruþróun og fjárfestingar, Gagnasöfn og rannsóknaáætlun. Viðburðinum verður streymt en gert verður hlé á streyminu meðan á hópavinnu stendur. Ráðstefnustjóri er Sigríður Örvarsdóttir, safnstjóri Listasafnsins á Akureyri Dagskrá 09:00 Ávarp - fulltrúi menningarmálaráðherra 09:10 Menningarferðaþjónusta í ferðamálastefnu - Svanhildur Konráðsdóttir, formaður starfshóps um menningarferðaþjónustu í mótun ferðamálastefnu og forstjóri Hörpu 09:20 Dæmisögur af menningarferðaþjónustu Landnámssetrið í Borgarnesi - Sigríður Margrét Guðmundsdóttir, forstöðumaður Landnámssetursins Galdrasýning á Ströndum - Jón Jónsson, þjóðfræðingur 1238 Baráttan um Ísland - Freyja Rut Emilsdóttir, framkvæmdastjóri Bræðslan: Geta viðburðir styrkt brothættar byggðir? - Áskell Heiðar Ásgeirsson, lektor við Ferðamáladeild Háskólans á Hólum Þórbergssetur - Þorbjörg Arnórsdóttir, forstöðumaður Þórbergsseturs Lava Show - Ragnhildur Ágústsdóttir LadyLava, stofnandi LavaShow 10:30 Kaffihlé 10:45 Áfangastaðir - sögur, söfn og frumkvöðlastarf Rannsóknir og þróunarverkefni Vistkerfi menningararfs og ferðaþjónustu: Frásagnir og skapandi ferli til eflingar samfélaga og byggða Katrín Anna Lund, prófessor í ferðamálafræði við Háskóla Íslands Sameiginleg hagsmunamál safna og ferðaþjónustu á Íslandi Guðrún Dröfn Whitehead, lektor í safnafræði Óáþreifanlegur menningararfur: Þróun og sjálfbærni Ingibjörg Benediktsdóttir, verkefnastjóri hjá Þekkingarneti Þingeyinga Túrismi, trauma og tækni til miðlunar Sigurjón Hafsteinsson, prófessor við Háskóla Íslands 11:45 Stuttar umræður 12:00 Hádegisverður 13:00 Hópavinna Samstarf og klasahugsun Markaðs- og kynningarmál Vöruþróun og fjárfestingar Gagnasöfn og rannsóknaáætlun 14:30 Kaffihlé 14:50 Kynningar og umræður á hópastarfi 15:50 Lokaorð - fulltrúi atvinnuvegaráðherra 16:00 Ráðstefnu slitið Vinsamlegast skráið mætingu ýmist á staðinn eða í streymi hér:
https://www.rssg.is/audlind. Skráningu lýkur kl. 12 mánudaginn 5. maí.