Fjör og gleði á Puffin Run! Það verður sannkölluð veisla í Höllinni í Eyjum þegar snillingarnir í grínhópnum Púðursykur mæta með sýningu sína Meiri púðursykur. Fram koma: Björn Bragi Dóri DNA Emmsjé Gauti Jóhann Alfreð Saga Garðars Húsið opnar kl. 20.00 og forsölu lýkur þegar við tökum úr lás. Verð á Meiri púðursykur er 7.990 kr. Að þessu tilefni ætlum við að vera með glæsilegt steikahlaðborð frá Einsa kalda. Það opnar kl.19.00 og er því kjörið að mæta fyrr og gera vel við sig í mat og drykk og grenja svo úr hlátri fram á kvöld. Matseðill kvöldsins: Langtímaeldað nauta ribeye Kalkúnabringur í salvíusmjöri Meðlæti: Ferskt salat að hætti hlauparans: Rómin kál, konfekttómatar, mangó, melóna, bláber, granatepli, sítrónuolía Hunangsbakað grænmeti: Gulrætur, kúrbítur, rauðlaukur, paprika, vorlaukur, döðlur Smjörsteiktir sveppir: Kastaníusveppir, strandsveppir, ostrusveppir, kantarellusveppir Ofnbakaðar kartöflur með beikon og blaðlauk Rjómalöguð villisveppasósa og bernaisesós Verð á steikarhlaðborð og sýningu er 15.500 kr. Allir velkomnir, hvort sem þeir geta hlaupið eða ekki.