Hæ, við erum með spennandi fréttir!
Við ætlum að vera með sjálfshjálparnámskeið 15.nóvember næstkomandi í OM-Setrinu í Reykjanesbæ.
Við erum:
Björk Ben er öndunarþjálfi, dáleiðari og þerapisti.
Jón Ragnar er heilari og fræðslumiðill.
Þetta námskeið er heilstætt sjálfshjálparnámskeið þar sem við ræðum um tengingu hins mannlega yfir í andlega.
Við mannverurnar erum svo margt á sama tíma sem við þurfum að horfa á heilstætt þegar við ætlum að heila okkur.
Við erum:
Manneskjur í líkama sem bregst við með taugakerfi og líffærum og safnar upplýsingum.
Hugur sem upplifir og túlkar og greinir og myndar sér skoðanir og býr til sögur.
Sál sem hefur mikla visku, þekkir aðra heima og getur tengst öðrum með orku.
Og með sál okkar getum við líka tengst visku Alheimsins, andanum, sem er okkur alltaf tiltæk ef við bara opnum á að hlusta á hana (Einingin).
Þetta námskeið verður því sambland af okkar sérþekkingu og því algerlega mögnuð upplifun sem þú vilt ekki láta framhjá þér fara 🙏
Námskeiðið verður frá kl. 10:00 til 16:00
Dagskráin:
10:00 Öndunarferðalag - Vinna með taugakerfi og huga.
11:30 Slökun - Yndisleg sefun eftir kröftuga byrjun á deginum.
12:00 Hádegishlé - þar sem hver og einn kemur með sitt nesti eða getur skottast eitthvað í nágrenninu, þar sem er nóg úrval af veitingum.
13:00 Hugur og taugakerfi - Fyrirlestur á léttu nótunum til að ná dýpri skilningi á líkama okkar sem viðbragð í okkar daglega lífi.
14:00 Sálin, jarðlífið og andinn - Enn léttari fyrirlestur um okkur í andlega heiminum.
15:00 Samtalshringur og heilunaræfingar
Námskeiðið kostar aðeins 15.000 kr. og það er nauðsynlegt að skrá sig með því að senda öðru okkar skilaboð það eru aðeins 20 pláss laus, svo það er um að gera að hafa hraðann á og skrá sig.
Við hlökkum til að sjá þig og fara með þér í gegnum þennan frábæra dag sem verður blanda af yndislegri upplifun, heilun, gleði og fræðslu.
Sendu okkur skilaboð sem fyrst ef þú vilt skrá þig það eru aðeins nokkur pláss laus.
Kærleikur og ljós til þín 💛
Björk Ben og Jón Ragnar