Í tilefni af Barnamenningarhátíð og 70 ára afmælis Kópavogsbæjar býður Náttúrufræðistofa Kópavogs gestum að kynnast lífinu neðansjávar. Þessa önn hafa Náttúrufræðistofa og Gerðarsafn, í samstarfi við skóla í Kópavogi, tekið á móti 372 börnum í 2. bekk. Þar fengu nemendur að fræðast um neðansjávarlíf, fara í innanhúsfjöruferð og skapa sín eigin listaverk. Nú gefst öllum tækifæri til að taka þátt í þessu ævintýri: kanna lífverur og búa til listaverk innblásin af lífinu í sjónum! 🔬 Hlynur Steinsson, líffræðingur, leiðir lífveruleit í Tilraunastofunni 🎨 Jóhanna Ásgeirsdóttir, myndlistarkona, stýrir listasmiðju í Náttúrufræðistofu Viðburðurinn hentar börnum og ungmennum á öllum aldri. Aðgangur er ókeypis – öll eru hjartanlega velkomin!