Leshringurinn Sólkringlan hittist venjulega þriðja fimmtudag í mánuði kl. 17.30-18.30 í Borgarbókasafninu Kringlunni, frá september til maí. Dagskráin fyrir vorið 2025 er eftirfarandi: 23. janúar: HKL ástarsaga eftir Pétur Gunnarsson 20. febrúar: Skegg Raspútíns eftir Guðrúnu Evu Mínervudóttur 20. mars: Ástríðan eftir Jeanette Winterson og Borgirnar ósýnilegu eftir Italo Calvino 10. apríl: Sendiherrann eftir Braga Ólafsson 15. maí: Dyrnar eftir Mögdu Szabó Öll hjartanlega velkomin. Skráning fer fram með því að senda tölvupóst á guttormur.thorsteinsson@reykjavik.is Nánar hér:
https://borgarbokasafn.is/starfid-a-safninu/baekur/leshringurinn-solkringlan Sjá yfirlit um alla leshringi Borgarbókasafnsins:
https://borgarbokasafn.is/leshringir-og-spjallhopar Umsjón og skráning: Guttormur Þorsteinsson guttormur.thorsteinsson@reykjavik.is | 411 6204