Við höldum kynningarkvöld fyrir undirbúningsnámskeiðin fyrir Laugavegshlaupið og Fimmvörðuhálshlaupið 2027.
Skráning í Laugavegshlaupið hefst 11. nóvember og stendur til 18. nóvember. Skráning í Fimmvörðuhálshlaupið hefst 6. nóvember.
Skráning á Laugavegsnámskeiðið hefst um leið og Laugavegshlaupið gefur út hver hafa fengið miða í hlaupið. Skráning á 5VH námskeiðið er hafin í Abler!
Kynning á námskeiðunum verður haldin í verslun 66°Norður Faxafeni, mánudagskvöldið 23. nóvember kl. 19:30. Öll velkomin!
Námskeiðin eru í höndum reyndra hlaupaþjálfara í skemmtilegum félagsskap. Sameiginlegar æfingar, fjölbreytt og markviss æfingaprógröm ásamt fræðslu.
Laugavegsnámskeið Náttúruhlaupa hefur notið mikilla vinsælda í áratug. Námskeiðið býður uppá faglega handleiðslu, markvisst æfingaprógram, getuskipta hópa og fjölbreyttar sameiginlegar æfingar tvisvar í viku.
Námskeiðið er fyrir alla sem hafa góðan bakgrunn í hlaupum og stefna á að hlaupa Laugavegshlaupið 2027. Laugavegsnámskeiðið hefst miðvikudaginn 31. mars og stendur fram að Laugavegshlaupinu sem fer fram 17. júlí 2027.
Nánari upplýsingar og skráning á Laugavegsnámskeiðið:
https://natturuhlaup.is/namskeid/laugavegsnamskeid/
Skráning og skráningargjald í Laugavegshlaupið er ekki innifalin í undirbúningsnámskeiðinu.
5VH/Fimmvörðuhálsnámskeiðið er 14 vikna hlaupaprógram fyrir fólk sem vilja þjálfa sig upp í að taka þátt í 5VH hlaupinu 14. ágúst eða öðru 20-30 km utanvegahlaupi síðla sumars. Námskeiðið, sem verður haldið í þriðja sinn á næsta ári, byggir á grunni hins vinsæla undirbúningsnámskeiðs fyrir Laugavegshlaupið, en fyrir hlaupara sem vilja byrja á spreyta sig á styttri vegalengd í utanvegahlaupunum. Námskeiðið hefst þriðjudaginn 4. maí og stendur fram að 5VH hlaupinu 14. ágúst.
Námskeiðið byggir upp góðan grunn fyrir þau sem stefna á Laugavegshlaupið eða lengri hlaup í framtíðinni. 5VH keppnin yfir Fimmvörðuháls í ágúst gefur ITRA stig.
Nánari upplýsingar og skráning á 5VH námskeiðið:
https://natturuhlaup.is/namskeid/5vh-namskeid/