Komdu í sjóinn með SJÓR! 🌊
Við hittumst á Ylströndinni í Nauthólsvík á laugardögum kl. 13 í vetur og syndum saman.
Stefnt er að sundi út að kaðli og mögulega lengra þegar aðstæður leyfa. Vegalengd og tími í sjónum miðast við aðstæður, getu og reynslu hvers og eins.
Í upphafi förum við yfir aðstæður og öryggisatriði. Við höldum hópinn, hlustum á líkamann og njótum þess að synda saman.
Stjórn og nefndir félagsins skiptast á að hafa umsjón með æfingunum.
Æfingarnar eru fyrir félagsmenn SJÓR, en nýliðar eru velkomnir í prufutíma.
Skráðu mætingu í Abler svo við vitum hverra er von.
Sjáumst í sjónum! 💙