Í vetur ætlum við að hjóla saman um höfuðborgarsvæðið. Til að byrja með frá Hlemmi. Brottför kl 11:00 stundvíslega, gott að vera mætt aðeins fyrr. Við munum hjóla í 60-90 mínútur og stinga okkur svo inn á kaffihús eða bakarí. Öll velkomin og ekkert þátttökugjald. Flestir eru á rafmagnshjólum, svo fólk þarf að hafa góða hjólagetu til að taka þátt.
Það er engin sérstök dagskrá á laugardögum í vetur og enginn umsjónaraðili, þeir sem mæta ákveða í hvaða bakarí skal stefna og hjóla svo einhverja skemmtilega leið þangað.