* Tökum vel á móti fjölskyldum með börn á öllum aldri. Við leggjum áherslu á notalega samveru, leik, lestur og spjall og syngjum saman við gítarundirleik starfsmanns. Hér skapast gott tækifæri til að kynnast öðrum fullorðnum með kríli og skiptast á sögum um lífið og tilveruna. Bókasafnið á mikið af forvitnilegum og fræðandi bókum og tímaritum sem tengjast uppeldi og umönnun ungbarna sem hægt er að lesa á staðnum og korthafar geta tekið með sér heim. Svo er auðvitað mikið úrval af krílabókum, til að kveikja áhuga barnanna á bókmenntum! Nánar um krílastundir á Borgarbókasafninu
https://borgarbokasafn.is/vidburdir/born/krilastundir-i-sponginni-19