*Þriðja föstudag í mánuði ætlum við að hafa notalega morgunstund hér á bókasafninu í Kringlunni. Njótum samveru, spjöllum og leikum með litlu krílunum. Hér skapast gott tækifæri til að kynnast öðrum með lítil börn og skiptast á sögum um lífið og tilveruna. Dagskráin er áætluð út frá börnum á aldrinum 0-3 ára en auðvitað eru öll velkomin. Bókasafnið á mikið af forvitnilegum og fræðandi bókum og tímaritum sem tengjast uppeldi og umönnun ungbarna, sem hægt er að glugga í á safninu og korthafar geta gripið með sér heim. Svo er auðvitað mikið úrval af krílabókum til að kveikja áhuga barnanna á bókmenntum! Krílastundirnar hefjast klukkan 10:00. Athugið að safnið opnar ekki fyrr en 11:00, svo starfsmaður verður við dyrnar og hleypir ungbörnunum og fylgifiskum inn. 17. janúar 21. febrúar 21. mars 25. apríl 16. maí Heitt kaffi og te í boði. Sjáumst! Sjá nánar á Heimasíðu Nánari upplýsingar veitir Brynhildur Lea Ragnarsdóttir brynhildur.lea.ragnarsdottir@reykjavik.is 411-6200 Barnabókavörður*