Hringleikur býður upp á fríar sirkus smiðjur fyrir 3-5 ára börn. Komdu og upplifðu ævintýri sirkusheimsins! Börnum og foreldrum er boðið saman að upplifa ýmis sirkusáhöld, hreyfa sig og leika saman. Sirkus smiðjurnar eru 45 mínútur og innifalið í því er sameiginleg upphitun með söng, sirkustrikk, þrautabraut og frjáls tími. Þessi viðburður er hluti af Side-Flipp viðburðaröðinni sem er styrkt af Barnamenningarsjóði og Reykjavíkurborg. Verkefnið er unnið í samstarfi við sirkulistafélagið Hringleik og Borgarbókasafnið. Borgarbókasafnið Gerðubergi Gerduberg, 111 Reykjavík 17. maí kl. 13:30-14:15 24. maí kl. 13:30-14:15