Kerfisáætlun Landsnets, ásamt framkvæmdaáætlun og umhverfismatsskýrslu, er nú í opnu umsagnarferli sem stendur til 31. maí. Verið öll velkomin á opinn fund 14. maí í Hilton Reykjavík Nordica þar sem gerð verður grein fyrir helstu breytingum á áætluninni. Boðið verður upp á morgunmat kl. 08:00 og fundurinn hefst kl. 08:30. Sérfræðingar Landsnets, sem komu að gerð kerfisáætlunar, sitja fyrir svörum varðandi þau atriði sem fram koma.