Karíus og BaktusTanntröllin
Karíus og Baktus lifa sannkölluðu sældarlífi í munninum á drengnum Jens. Enda
notar hann tannburstann lítið sem ekkert og vill helst gæða sér á allskyns
sætindum sem Karíus og Baktus kunna svo sannarlega að meta. Félagarnir hreiðra
um sig í tönnunum og ræða framtíðardrauma um…
Staðsetning
Harpa | Kaldalón
Leikhús
Sun 11 maí • 13:00
Karíus og Baktus
Harpa | Kaldalón
Karíus og BaktusTanntröllin
Karíus og Baktus lifa sannkölluðu sældarlífi í munninum á drengnum Jens. Enda
notar hann tannburstann lítið sem ekkert og vill helst gæða sér á allskyns
sætindum sem Karíus og Baktus kunna svo sannarlega að meta. Félagarnir hreiðra
um sig í tönnunum og ræða framtíðardrauma um byggingaframkvæmdir í munninum. En
þegar þeir gerast of aðgangsharðir verður Jens að fara til tannlæknis sem setur
framkvæmdirnar í uppnám og félagarnir þurfa að leita á nýjar slóðir.
Karíus
og Baktus er sígilt ævintýri eftir Thorbjörn Egner. Sagan kom fyrst út á bók
árið 1949 og síðan þá hafa þessir litlu prakkarar notið mikilla vinsælda meðal
barna víða um heiminn.
Nú
má sjá þessa sígildu prakkara í fallegu leikhúsi sem sett hefur verið upp í
Kaldalóni í Hörpu en það er miklu skemmtilegra að kíkja á þá þar en að hafa
þá í munninum á sér. Karíus og Baktus er hress og skemmtileg sýning fyrir alla
aldurshópa og er tilvalin fyrir unga krakka sem eru að kynnast töfrum
leikhússins í fyrsta skipti.Sýningin er um 45 mínútur að lengd og án hlés. Leikarar: Albert Halldórsson og Snædís Lilja Ingvarsdóttir
Leikstjórn: Sara Marti og Agnes WildLeikmynd og búningar: Steinunn Marta ÖnnudóttirTónlist: Stefán Örn GunnlaugssonMyndband: Steinar JúlíussonLeikmunir: Eva Björg HarðardóttirSýningarleyrsla: Óðinn RagnarssonFramleiðslustjórn: Jón Þ. Kristjansson