DJÚPSLÖKUN OG SJÁLFSFRÆKT
Frítt inn!
Næstu dagsetningar:
• 04.10.2026 kl.11:00-12:30
• 15.11.2026 kl.11:00-12:30
• Desember (dagsetning staðfest þegar nær dregur) kl.11:00-12:30
• 10.01.2027 kl.11:00-12:30
Björg Halldórstóttir og Lenka Uhrová kynna heilsueflandi orkupakka þér að kostnaðarlausu sem vinnur heildrænt með kerfi mannsins. Tímarnir verða haldnir í Menningarhúsinu Bergi.
Við munum læra á hin ýmsu verkfæri sem einstaklingar geta nýtt sér í daglegu lífi til að styrkja andlega heilsu og vellíðan.
Þessi smiðju röð er styrkt af Heilsueflandi Dalvíkurbyggð og er fyrir alla áhugasama og forvitna sem eru tilbúnir að kynnast eða dýpka sína þekkingu á sjálfum sér! Við gerum okkar besta til að gera tímana aðgengilega fyrir bæði íslensku og enskumælandi einstaklinga.
Þessi ókeypis tími er til þess fallinn að kynna Yoga Nidra fyrir Dalvíkingum sem róar miðtaugakerfi einstaklinga ásamt fleiri ávinningum. Yoga Nidra er öflug slökun og hugleiðslutækni sem virkar á miðtaugakerfið og hjálpar til við að slaka á líkamanum, að innan sem utan. Miðtaugakerfið er aðalmiðstöð meðvitaðrar og ómeðvitaðrar hegðunar, þ.m.t. sjálfvirkar og ósjálfvirkra aðgerða. Þessi tækni gerir þér kleift að halda meðvitund á meðan þú ferð inn á draumastigið þar sem mikil heilun fer fram. Öflug leið til að draga úr streitu og vinna úr áföllum. Einnig munu þær kynna mismunandi sjálfsstyrkingar verkfæri til að nota í daglegu lífi. Verkfærin eru hönnuð til að hjálpa einstaklingum að tengjast sjálfum sér og geta hjálpað með vinnslu einkenna áfallastreitu.
Þessir tímar eru hannaðir á þann hátt að þú getur bara tekið einn eða alla tímanna, eða eins og þér hentar.
Loturnar eru 90 mínútur í senn og fyrstu 60 mínúturnar eru tileinkaðar yoga og 30 mínútur í smiðju þar sem allskonar sjálfsstyrkingar verkfæri eru kennt og síðan iðkuð.
Í yoga er farið í öndunaræfingar, mjúkar yoga stöður og endað á Yoga Nidra til að undirbúa hug og sál fyrir sjálfsstyrkingar smiðju. Þátttakendur eru hvattir til að hlusta á sjálfa sig og fylgja þeirra innri hvötum. Hver og einn finnur hvað styrkir þeirra vellíðan til að taka með sér út í lífið.
Um leiðbeinendur:
Björg Halldórsdóttir er lærður jógakennari (meira en 250 hr.ytt) ásamt því að hafa bætt við sig kennsluréttindum í Yoga nidra, áfallajóga og Yin yoga. Hún hefur kennt jóga, öndunaræfingar, núvitund og hugleiðslur síðastliðin 5 ár á hinum ýmsum stöðum fyrir alla aldurshópa. Hún er einnig lærður þroskaþjálfi og starfar sem ráðgjafi á meðferðarheimili fyrir unglingsstúlkur.
Lenka Uhrová er með 20 ára reynslu í að skapa öruggt rými fyrir hópa þar sem þekking á sjálfsþróun er miðlað á valdeflandi hátt. Hún hefur haldið fjölbreyttar og alþjóðlegar smiðjur og fræðsluviðburði fyrir alla aldurshópa víða í Evrópu og á Íslandi.