Íslenskuþjálfun í samstarfi við Rauða krossinn við Eyjafjörð ætlar að hittast á Amtsbókasafninu alla fimmtudaga kl. 16:30 til 18:00. Sköpum tækifæri fyrir fólk sem er að læra íslensku til að æfa tungumálið. Öll eru velkomin: byrjendur, þau sem eru lengra komin, eða tala reiprennandi, líka þau sem hafa íslensku sem móðurmál. Við hjálpum hvoru öðru og höfu, gaman, spilum orðaspil, lesum saman eða spjöllum bara. Vinsamlegast athugið að þetta er ekki tungumálanámskeið. Nánari upplýsingar veitir Róbert Theodórsson, á netfanginu robertth@redcross.is Við hvetjum ykkur til að mæta með umhverfisvænum hætti á viðburðinn. Frítt er í strætó og allir strætisvagnar stoppa í miðbænum í 300 metra fjarlægð frá safninu.