Rannís, Tækniþróunarsjóður og Enterprise Europe Network taka þátt í Nýsköpunarvikunni og bjóða til hádegisviðburðar með yfirskriftinni: Innovate and Elevate! - Funding, Founders and Fun. Innovate and Elevate! - Funding, Founders and Fun er viðburður þar sem hugmyndir og tækifæri mætast í skemmtilegu og þæginlegu andrúmslofti. Á dagskrá eru innblásnar frásagnir frá frumkvöðlum, gagnleg innsýn frá sérfræðingum í styrkmöguleikum, og tækifæri til tengslamyndunar. Hvort sem þú ert frumkvöðull, fjárfestir eða hefur einfaldlega áhuga á nýsköpun, þá býður viðburðurinn upp á hagnýta þekkingu og nýja sýn. Nánari upplýsingar og skráning:
https://www.rannis.is/frettir/nyskopunarvikan-innovate-and-elevate-funding-founders-and-fun