Við höfum beðið í heilt ár og nú er loksins komið að því, fjórða árlega Improvision Improv Ísland verður haldið hátíðlegt miðvikudaginn 14. maí! Improvision er söngvakeppni þar sem öll lögin eru búin til á staðnum ásamt hljómsveit út frá tillögum áhorfenda. Það mun síðan vera hlutverk þeirra að kjósa sigurvegara keppninnar. Spunaleikararnir vita ekkert hvað þau eru að fara að syngja og hljómsveitin veit ekkert hvað hún er að fara að spila. Söngur, dans, spuni og frábærir leynigestir! Miðasala er hafin á tix.is og leikhusid.is.