Foreldrafélag Hólabrekkuskóla og Fellaskóla ætlar að endurvekja hverfarölt um hverfin á kvöldin. Hverfarölt snýst um að vera sýnileg í hverfinu. Röltið hefur forvarnargildi og eflir öryggistilfinningu hjá börnum og unglingum með því að vera sýnileg í hverfunum. Röltið er ætlað öllum þeim sem vilja, ekki nauðsynlegt að eiga barn í skólunum. Hvetjum öll að mæta! Góð heilsubótarganga, með skemmtilegu fólki lækkar blóðþrýsting og nærir sál. Hundar og kettir velkomnir - í bandi :) Við hittumst fyrir utan Iceland í Vesturberginu kl. 21:30, fáum merkt vesti og tökum síðan hring um hverfið. Hér er skemmtileg frétt frá 2017 þar sem fjallað er um hverfarölt í Breiðholti:
https://borgarblod.is/2017/12/21/oflugt-hverfarolt-i-breidholti-sameinar-ibua/